Fotbolti.net
27.11.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Skráning hafin fyrir Boreal Cup

Skráning hafin fyrir Boreal Cup
Canon

Mynd: Boreal Cup / KM

Skráning fyrir vetrarmótið skemmtilega Boreal Cup er hafin. Mótið er sérsniðið fyrir lið sem leika í 5. deild og utandeildum.
Smári sigraði Boreal Cup eftir níu marka úrslitaleik
TENGT EFNI

Smári sigraði Boreal Cup eftir níu marka úrslitaleik

Boreal Cup var stofnað árið 2017 og er spilaður 11 manna fótbolti. Þetta er vetrarmót sem hjálpar liðum í neðstu deildum íslenska boltans í undirbúningi sínum fyrir komandi tímabil.

Í vetur verður keppt í einni 8-liða deild þar sem hvert lið spilar sjö leiki og stendur efsta sætið uppi sem sigurvegari. Fyrsta umferð á að klárast í lok janúar 2027 og lýkur mótinu svo í byrjun maí og er leikjunum raðað niður þannig að þeir rekist hvorki á Lengjubikarinn né Mjólkurbikarinn.

Knattspyrnufélagið Miðbær stendur fyrir mótinu og eru plássin takmörkuð. Áhugasöm félög geta skráð sig til leiks með því að senda tölvupóst á [email protected].
Skráning hafin fyrir Boreal Cup
Canon

Mynd: Boreal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.