Fotbolti.net
28.01.16 - 21:20
Elvar Geir Magnússon

Gulli Jóns: Margir ungir leikmenn banka á dyrnar

Auglýsing
Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA.

Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er bara hressandi að komast aðeins út,\" sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari Skagamanna sem unnu í kvöld ótrúlegan 6-1 sigur gegn Stjörnunni í bronsleik Fótbolta.net mótsins. Leikið var utandyra á Samsung vellinum í dágóðum kulda.

Skagamenn tóku þriðja sætið en lokatölurnar gefa ekki rétta mynd af leiknum þar sem Stjarnan átti til dæmis fleiri skottilraunir.
„Ég er mjög ánægður með þennan góða sigur en þetta var frekar skrítinn leikur. Stjarnan lá á okkur fyrsta hálftímann og fékk ágætis færi. En við náðum að halda aftur af þeim og gerðum frábær mörk í dag. Það var ágætis flæði í þessum leik.\"

Ungir strákar létu að sér kveða í leiknum í kvöld, þar á meðal Steinar Þorsteinsson sem skoraði þrennu.

„Það hefur verið þannig frá og með haustinu að það eru margir að banka á dyrnar, fleiri en komu við sögu í dag. Það er sérstaklega jákvætt og gerir okkur bara erfiðara fyrir þegar við þurfum að ákveða hvað við ætlum að gera í leikmannamálum,\" sagði Gunnlaugur en Skagamenn hafa haft mjög hljótt um sig í leikmannamálum í vetur.

„Við erum að líta í kringum okkur en viljum vanda valið. Við þurfum að skoða hvort og hve marga við þurfum að bæta í hópinn.\"

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.