UEFA hefur opinberlega dæmt miðjumanninn Nicolo Barella í tveggja leikja bann svo miðjumaðurinn missir af báðum leikjunum gegn Liverpool í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Hann fékk beint rautt spjald í síðasta leik Inter í riðlakeppninni, gegn Real Madrid í desember.
Hann fékk beint rautt spjald í síðasta leik Inter í riðlakeppninni, gegn Real Madrid í desember.
Inter hyggst ekki áfrýja þessari ákvörðun.
Inter hefur náð að komast í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn í tíu ár. Liðið dróst fyrst gegn Ajax en eins og frægt er þurfti að draga aftur vegna þess að mistök voru gerð og þá dróst Inter gegn Liverpool.
Ítalíumeistararnir fá Liverpool í heimsókn 16. febrúar og liðin mætast svo aftur á Anfield 8. mars. Joaquin Correa missir af leiknum í Mílanó vegna meiðsla.
Athugasemdir