KA 4 og Hamrarnir mættust í Kjarnafæði mótinu í gær. Leiknum lauk með stórsigri Hamranna.
Staðan var jöfn, 2-2, í hálfleik og var orðin 3-2 fyrir Hamrana snemma í síðari hálfleik. Það var ekki fyrr en skammt var eftir af leiknum sem Hamrarnir bættu við þremur mörkum, þar af tveimur í uppbótartíma.
Fannar Hafsteinsson sem hefur leikið sem markvörður m.a. með Þór og KA hefur verið að spila sem útileikmaður fyrir Hamrana í vetur en hann skoraði tvö mörk í leiknum. Þá skoraði Ármann Pétur Ævarsson tvö mörk, bæði í uppbótartíma í síðari hálfleik.
Jón Viðar Þorvaldsson og Pétur Heiðar Kristjánsson skoruðu sitt markið hvor. Ísak Magni Lárusson og Gabriel Lukas Freitas Meira skoruðu mörk KA 4.
Athugasemdir