Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 28. febrúar 2020 10:07
Elvar Geir Magnússon
Ástralskur framherji í Keflavík (Staðfest)
Joey Gibbs.
Joey Gibbs.
Mynd: Keflavík
Keflavík hefur fengið til sín ástralskan framherja sem heitir Joey Gibbs en hann hefur leikið í efstu og næstefstu deild í heimalandinu.

Gibbs er 27 ára gamall og hefur skorað 43 mörk í 113 leikjum fyrir Blacktown City sem spilar í áströlsku B-deildinni.

Á Instagram síðu Keflavíkur er sagt að Gibbs fái ekki leikheimild strax og hann verður því ekki með á morgun þegar Keflavík leikur gegn KA fyrir norðan í Lengjubikarnum.

Keflavík hafnaði í 5. sæti 1. deildarinnar í fyrra en eftir tímabilið var Sigurður Ragnar Eyjólfsson ráðinn þjálfari við hlið Eysteins Húna Haukssonar.

Gibbs er þriðji erlendi leikmaðurinn sem Keflavík fær til sín í vetur en liðið stefnir á að komast upp í deild þeirra bestu í sumar.

Glugginn hjá Keflavík:

Komnir:
Joey Gibbs frá Ástralíu
Kian Williams frá Magna
Andri Fannar Freysson frá Njarðvík
Ari Steinn Guðmundsson frá Víði
Nacho Heras frá Leikni R
Sigurbergur Bjarnason frá Vestra
Sigurbergur Elísson frá Reyni

Farnir:
Adolf Bitegeko Mtasingwa í KR (var á láni)
Arnór Smári Friðriksson*
Elton Livramento Barros*
Ísak Óli Ólafsson til Sönderjyske
Þorri Mar Þórisson í KA (var á láni)
Athugasemdir
banner
banner
banner