Það er verið að bjóða upp á algjöra fótboltaveislu í París þar sem seinni hálfleikur er nýhafinn í undanúrslitaleik PSG og Bayern München í Meistaradeildinni.
Fyrri hálfleikurinn var pakkfullur af skemmtun, frábærum sóknartilþrifum, umdeildum atvikum og stuði. Staðan að honum loknum var 3-2.
Fyrri hálfleikurinn var pakkfullur af skemmtun, frábærum sóknartilþrifum, umdeildum atvikum og stuði. Staðan að honum loknum var 3-2.
„Ég held að við komumst ekki hærra né lengra í okkar íþrótt. Það er allt til sýnis í kvöld; taktík, dugnaður, þor, tækni og einvígi um allan völl. Þetta er stórkostlegur fótboltaleikur," sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari í hálfleik í útsendingu á Viaplay.
„Það er húsfundur í húsinu mínu og ég því miður missi af honum því ég er að horfa á þessa veislu," sagði Kjartan Henry Finnbogason sem er með Arnari í sjónvarpssal.
„Besti fyrri hálfleikur sem ég hef séð í langan tíma. Mér finnst eins og ég þurfi að leggjast í hálfleik. Það gæti vel verið 6-6," sagði Charlotte Coates sem lýsir leiknum fyrir BBC.
Fylgst er með gangi mála í leiknum í úrslitaþjónustu á forsíðu en þetta er fyrri viðureign liðanna.




