Paris Saint Germain 5 - 4 Bayern
0-1 Harry Kane ('17 , víti)
1-1 Khvicha Kvaratskhelia ('24 )
2-1 Joao Neves ('33 )
2-2 Michael Olise ('41 )
3-2 Ousmane Dembele ('45+5, víti)
4-2 Khvicha Kvaratskhelia ('56 )
5-2 Ousmane Dembele ('58 )
5-3 Dayot Upamecano ('65 )
5-4 Luis Diaz ('68 )
0-1 Harry Kane ('17 , víti)
1-1 Khvicha Kvaratskhelia ('24 )
2-1 Joao Neves ('33 )
2-2 Michael Olise ('41 )
3-2 Ousmane Dembele ('45+5, víti)
4-2 Khvicha Kvaratskhelia ('56 )
5-2 Ousmane Dembele ('58 )
5-3 Dayot Upamecano ('65 )
5-4 Luis Diaz ('68 )
Það voru ótrúleg sóknargæði í boði fyrir áhorfendur þegar Paris Saint-Germain mætti FC Bayern í mögnuðum risaslag í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Bæjarar byrjuðu leikinn betur og náðu forystunni eftir 17 mínútur þegar Harry Kane skoraði úr vítaspyrnu eftir að Willian Pacho var dæmdur brotlegur innan vítateigs. Luis Díaz gerði vel að fiska vítaspyrnuna og skoraði Kane örugglega af punktinum.
Khvicha Kvaratskhelia jafnaði eftir laglegt eisntaklingsframtak sjö mínútum síðar og kom Joao Neves heimamönnum yfir með skallamarki eftir hornspyrnu.
Michael Olise var gríðarlega líflegur og verðskuldaði að gera jöfnunarmark á 41. mínútu en markaregnið hélt áfram með umdeildum vítaspyrnudómi seint í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Þar var dæmd hendi á Alphonso Davies og skoraði Ousmane Dembélé af vítapunktinum.
Staðan var 3-2 í hálfleik sem er markamet í fyrri hálfleik í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Bayern byrjaði betur fyrstu 20 mínúturnar en PSG var svo sterkari aðilinn eftir það.
Annað markamet var bætt í síðari hálfleik þar sem leikmenn virtust ekki geta hætt að skora. Kvaratskhelia og Dembélé bættu sitthvoru markinu við svo staðan var orðin 5-2 fyrir PSG og margir sem héldu að leikurinn væri búinn, en svo var ekki.
Gestirnir frá München gáfust ekki upp og náði Dayot Upamecano að minnka muninn niður í tvö mörk með skalla eftir aukaspyrnu áður en Luis Díaz sýndi gæðin sín til að skora eftir góða sendingu yfir varnarlínu PSG. Hægt er að setja spurningarmerki við varnarleik Marquinhos sem hefði mögulega átt að spila Díaz rangstæðan. Bæði mörkin voru á barmi rangstöðu en þó gild og staðan orðin 5-4 eftir 68 mínútur.
Meira var ekki skorað þrátt fyrir tækifæri á báða bóga, en heimamenn í PSG björguðu á marklínu á síðustu sekúndum leiksins.
Lokatölur 5-4 sem er markamet í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Seinni leikur liðanna verður leikinn í München á miðvikudagskvöldið í næstu viku.
28.04.2026 20:40
Níu mörk komin í sögulegan undanúrslitaleik





