Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Níu mörk komin í sögulegan undanúrslitaleik
Mynd: EPA
Það er alvöru fótboltaskemmtun í gangi í París þessa stundina þar sem það hættir ekki að rigna mörkum í risaslag PSG gegn FC Bayern.

Staðan er orðin 5-4 fyrir PSG eftir 70 mínútna leik en heimamenn voru með 5-2 forystu fyrir fimm mínútum síðan.

Þetta er opinbert markamet í undanúrslitum Meistaradeildarinnar frá upphafi keppninnar í núverandi mynd.

Gömlu metin voru úr 5-2 sigri Liverpool gegn Roma frá árinu 2018 og 5-2 sigri Ajax gegn Bayern frá 1995. Þá voru einnig sjö mörk skoruð í 4-3 sigri Man City gegn Real Madrid 2022 og 4-3 sigri Real gegn Juventus 2003.

Til gamans má geta að einvígi Liverpool og Roma endaði samanlagt 7-6 eftir seinni leikinn í Róm og er markamesta undanúrslitaeinvígi í sögu Meistaradeildarinnar.

   28.04.2026 20:11
„Held að við komumst ekki hærra né lengra í okkar íþrótt“



Slapp
banner
banner
banner