Fotbolti.net
28.05.05 - 06:14
Magnús Már Einarsson

Van der Vaart til HSV (Staðfest)

Van der Vaart til HSV (Staðfest)
Canon
Þýska liðið Hamburg hefur krækt í miðjumanninn magnaða Rafael van der Vaart frá Ajax. Van der Vaart sem er 22 ára hefur skrifað undir 5 ára samning við HSV. Kaupverðið er ekki vitað en það er talið vera um 7 milljónir evra.
,,Ég er mjög ánægður með að sala mín til Hamburg hefur verið kláruð." Sagði van der Vaart við heimasíðu HSV.

Dietmar Beiersdorfer yfirmaður íþróttamála hjá HSV var sáttur en hann sagði ,,Við erum glaðir að hafa fengið leikmann í alþjóðlegum klassa eins og van der Vaart."

Van der Vaart lék sinn fyrsta leik fyrir Ajax árið 2000 og voru mörg helstu stórlið Evrópu á eftir honum. Hann hefur ekki náð sér á strik síðastliðið ár en það vekur þó athygli að hann hafi ákveðið að fara til HSV sem náði ekki Evrópusæti fyrir næsta tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.