Láki: Erum í góðri stöðu í dag og fögnum því
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorlákur Már Árnason, þjálfari Stjörnunnar í Pepsi-deild kvenna, var að vonum ánægður með sigur liðsins á Val í kvöld.
Stjarnan vann Val með tveimur mörkum gegn engu, en Danka Podovac og Megan Manthey skoruðu mörk gestanna sem eru nú með fullt hús stiga eftir fimm umferðir á meðan Valur er tíu stigum á eftir þeim.
,,Já bara eins og allir leikir, það eru allir leikir erfiðir. Þessir var mjög erfiður og Valsstúlkur spiluðu mjög vel í dag og þó svo við höfum fengið aðeins fleiri færi þá var maður aldrei rólegur og þær eru gríðarlega hættulegar í uppsettum atriðum en þetta var sanngjarn sigur,\" sagði Láki.
,,Þetta var aldrei steindautt, þetta var frábær leikur. Valur varð að vinna til þess að komast inn í mótið og nú eru tíu stig á milli liðanna. Við fórum upp á Hlíðarenda með lið sem var að berjast upp á líf og dauða og tókum þrjú stig.\"
,,Þetta var mjög köflótt, við byrjuðum betur, svo tók Valur yfir og við undir lok fyrri hálfleiks. Þetta var svipað í seinni og ákvað ég að gera breytingar útaf því, þær tókust sem betur fer.\"
,,Ég held að út af því að mótið er spilað, níu leikir fyrir Evrópukeppni. Við erum í góðri stöðu í dag og fögnum því, en byrjum að undirbúa okkur fyrir næsta leik á morgun,\" sagði hann ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.