Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 10:15
Kári Snorrason
Óskar Hrafn, Arnar Gunnlaugs og Eiður Smári meðal sérfræðinga RÚV á HM
Eiður Smári verður sérfræðingur á RÚV.
Eiður Smári verður sérfræðingur á RÚV.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ríkisútvarpið hefur opinberað það hvaða fólk mun koma að umfjöllun stöðvarinnar í kringum HM sem hefst eftir sléttar tvær vikur.

Í frétt RÚV segir að Stofan muni hita upp fyrir valda leiki og á hverjum leikdegi mun vera HM kvöld þar sem dagurinn verður gerður upp.

Edda Sif Pálsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir hafa umsjón með HM stofunni og uppgjörsþáttunum.

Sérfræðingar verða: Óskar Hrafn Þorvaldsson, Arnar Gunnlaugsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Adda Baldursdóttir og Albert Brynjar Ingason.

Ásamt þeim munu fleiri þekktir sparkspekingar mæta þegar líður á mótið segir í frétt RÚV.



Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner