Fotbolti.net
28.06.05 - 10:41
Hafliði Breiðfjörð

Pogatetz til Middlesbrough (Staðfest)

McClaren er byrjaður að kaupa

McClaren er byrjaður að kaupa

Canon
Middlesbrough hafa gengið frá samningum við austurríska landsliðsmanninn Emanuel Pogatetz. Leikmaðurinn kemur frá Bayer Leverkusen en kaupverð er 1,8 milljón punda. Hann er 22 ára gamall vinstri bakvörður og gerir fimm ára samning við enska liðið sem gildir frá 1. júlí.
Steve McClaren stjóri Boro fór að fylgjast með leikmanninum fyrir frammistöðu sína í UEFA Cup á síðustu leiktíð en hann heillaði líka er Boro lék gegn Grazer og þá varð McClaren viss um að hann yrði að kaupa hann.

,,Emmanuel hefur mjög góða reynslu sem landsliðsmaður og í Evrópukeppni Evrópu fyrir dreng á hans aldri. En hann er aðeins 22 ára og getur bætt sig enn frekar, svo við hlökkum til framtíðarinnar," sagði McClaren.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.