Fotbolti.net
28.06.05 - 15:31
Hafliði Breiðfjörð

Kuqi til Blackburn (Staðfest)

Kuqi til Blackburn (Staðfest)
Canon
Blackburn Rovers hafa gengið frá kaupum á finnska framherjanum Shefki Kuqi sem kemur frá Ipswich Town. Kuqi sem er 28 ára gamall gerir þriggja ára samning við Blackburn og er fyrstu kaup félagsins í sumar.
Hann var valinn besti leikmaður Ipswich á síðustu leiktíð en hann skoraði 20 mörk fyrir liðið sem leikur í ensku 1. deildinni. Kuqi er fæddur í Kosovo og hefur verið síðustu tvær leiktíðir hjá Ipswich.

Blackburn seldi nýlega Jon Stead til Sunderland á 1,8 milljón punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.