Fotbolti.net
28.06.05 - 15:59
Hafliði Breiðfjörð

Cheyrou til Bordeaux (Staðfest)

Cheyrou til Bordeaux (Staðfest)
Canon
Miðvallarleikmaðurinn franski, Bruno Cheyrou hefur gengið til liðs við Bordeaux í Frakklandi. Cheyrou lék síðustu leiktíð með Marseille en hann er í eigu Liverpool sem lánar hann til Bordeaux út tímabilið með möguleika á að kaupa hann eftir það.
Cheyrou er 27 ára gamall og hefur leikið þrjá landsleiki fyrir hönd Frakklands. Hann gekk í raðir Marseille síðasta sumar en gekk ekkert hjá félaginu.

Hjá Bordeaux hittir hann fyrir Vladimir Smicer fyrrum félaga sinn hjá Liverpool sem gekk í raðir félagsins í sumar. Franska deildin hefst 30. júlí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.