Fotbolti.net
28.06.26 - 11:54
Brynjar Ingi Erluson

Brighton og Leeds ná saman um Struijk

Brighton og Leeds ná saman um Struijk
Canon

Mynd: EPA

Brighton hefur náð samkomulagi við Leeds um kaup á hollenska miðverðinum Pascal Struijk. Sky Sports greinir frá.
Sky segir Brighton hafa náð munnlegu samkomulagi um að greiða Leeds 20 milljónir punda fyrir þennan 26 ára gamla varnarmann.

Struijk spilaði stórt hlutverk í að halda Leeds uppi í ensku úrvalsdeildinni. Félagið vildi alls ekki missa hann en gerði sér jafnframt grein fyrir því að hann ætti aðeins eitt ár eftir af samningi og því væri þetta síðasta tækifærið til að fá eitthvað fyrir hann.

Brighton seldi Jan Paul van Hecke til Tottenham fyrir 52 milljónir punda en Struijk er ekki beinn arftaki hans enda er hann örvfættur á meðan Van Hecke er réttfættur.

Samkvæmt enskum miðlum er Brighton einnig að reyna að kaupa króatíska miðvörðinn Luka Vuskovic frá Tottenham en síðasta tilboð hljóðaði upp á 45 milljónir punda. Félagið hefur einnig áhuga á Honest Ahanor, 18 ára leikmanni Atalanta á Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.