Annar sigurinn í röð hjá Freysa

Freyr Alexandersson byrjar vel með Rosenborg

Mynd: Rosenborg

Freyr Alexandersson er að byrja mjög vel með norska liðið Rosenborg en það vann annan deildarleikinn í röð er það bar sigur úr býtum gegn Start, 3-0, á útivelli í dag.
Fyrrum landsliðsþjálfarinn var látinn fara frá Brann fyrir sumarfríið en var ekki lengi án starfs. Alfreð Finnbogason, yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg, fékk sinn fyrrum þjálfara til liðs við félagið.
Freyr byrjaði á því að stýra Rosenborg til 3-0 sigurs gegn Kristiansund í síðustu umferð og fylgdi því eftir með öðrum þriggja marka sigri í dag.
Alsírski framherjinn Amin Chiakha skoraði tvö mörk og Simen Nordli eitt í sigrinum.
Rosenborg er í 10. sæti deildarinnar með 15 stig.
Júlíus Mar Júlíusson var í byrjunarliði Kristiansund sem gerði markalaust jafntefli við Sarpsborg. Hrannar Snær Magnússon kom inn af varamannabekknum í síðari hálfleik.
Kristiansund er í 15. sæti með 12 stig.
Júlíus var maður leiksins að mati FlashScore og fékk 7,7 í einkunn.