Fotbolti.net
18.07.26 - 16:17
Brynjar Ingi Erluson

2. deild: Ellefta mark Viðars tryggði Selfyssingum stigin þrjú

Viðar Örn skoraði sigurmarkið þegar tuttugu mínútur voru eftir. Hann er nú kominn með ellefu mörk í ellefu leikjum.

Viðar Örn skoraði sigurmarkið þegar tuttugu mínútur voru eftir. Hann er nú kominn með ellefu mörk í ellefu leikjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KFA 0 - 1 Selfoss
0-1 Viðar Örn Kjartansson ('70 )
Lestu um leikinn
Viðar Örn Kjartansson skoraði sigurmark Selfoss sem marði 1-0 sigur á KFA í 2. deild karla á SÚN-vellinum í Neskaupsstað í dag.

Færin voru á báða bóga í leiknum. Heimamenn byrjuðu af meiri krafti og áttu nokkrar tilraunir áður en Selfyssingar fóru að láta að sér kveða.

Viðar Örn komst næst því að opna markareikninginn í fyrri hálfleik þegar hann átti skot í innanverða stöngina. Sú tilraun virtist gefa gestunum meðbyr, en KFA vann sig aftur inn í leikinn og skapaði sér nokkur ágæt færi án þess að ná að skora fyrir hlé.

Heimamenn byrjuðu síðari hálfleikinn af sama krafti og þann fyrri. Simon Maas komst í tvö góð færi, en skallaði fyrst framhjá og skaut síðan yfir eftir að boltinn féll fyrir hann inni í vítateignum.

Marc Espi reyndi þá bakfallsspyrnu sem Filip Ivan Sabatti þurfti að hafa sig allan við að verja.

Selfyssingar færðu sig smám saman framar á völlinn og fóru að ógna marki KFA meira. Sigurmarkið kom að lokum eftir frábæran sprett Elíasar Karls Heiðarssonar upp vinstri vænginn. Hann sendi boltann fyrir markið þar sem Viðar Örn potaði honum í netið. Þetta var ellefta mark hans í deildinni á þessu tímabili.

Heimamenn kölluðu eftir tveimur vítaspyrnum á lokakaflanum. Fyrst vildu þeir meina að sparkað hefði verið aftan í Patrek Aron Grétarsson og skömmu síðar var kallað eftir hendi, en dómarinn lét hvorugt hafa áhrif á sig.

Selfyssingar héldu út og tryggðu sér mikilvægan 1-0 sigur. Liðið er í 2. sæti deildarinnar með 23 stig en KFA er í 8. sæti með 14 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar17+2138
2Selfoss17+932
3Kári17+1829
4Fjölnir17+425
5Víkingur Ó.17-525
6Kormákur/Hvöt17+1024
7Dalvík/Reynir17-321
8Magni17-1221
9KFA17+320
10Þróttur V.17-519
11Hvíti riddarinn17-1116
12KFG17-2913
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.