Fotbolti.net
28.06.26 - 16:11
Gylfi Már Þórðarson
Kjarninn

Byrjunarlið Keflavíkur og KR: Ljubicic byrjar

Ástbjörn byrjar í dag

Ástbjörn byrjar í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

12. umferð Bestu deildar karla heldur áfram klukkan 17:00 þegar Keflavík og KR mætast á HS Orku vellinum í Keflavík. Heimamenn í Keflavík sitja í 7. sæti deildarinnar með 12 stig en þeir hafa ekki sótt sigur í síðustu þremur leikjum sínum. Gestirnir í KR hafa átt góðu gengi að fagna í sumar og eru í 2. sæti með 28 stig.
Lestu um leikinn: Keflavík 3 - 2 KR
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, gerir þrjár breytingar á sínu liði. Í byrjunarliðið koma þeir Stefan Alexander Ljubicic, sem búinn er að taka út eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda, Sindri Snær Magnússon fyrirliði og Anton Kralj. Í þeirra stað setjast á bekkinn Axel Ingi Jóhannesson, Ernir Bjarnason og Eiður Orri Ragnarsson.

Óskar Hrafn gerir tvær breytingar á byrjunarliði KR frá sigrinum gegn ÍA í síðustu umferð. Á bekkinn tylla sér þeir Stefán Árni Geirsson og Gabríel Hrannar Eyjólfsson. Í þeirra stað koma Eiður Gauti Sæbjörnsson og Ástbjörn Þórðarson.

Byrjunarlið Keflavík

Ásgeir Orri Magnússon, Davíð Helgi Aronsson, Sindri Snær Magnússon (fyrirliði), Þorlákur Breki Þ. Baxter, Stefan Alexander Ljubicic, Muhamed Alghoul, Anton Kralj, Marin Mudrazija, Marin Brigic, Alpha Conteh, Ásgeir Páll Magnússon

Byrjunarlið KR

Halldór Snær Georgsson, Michael Osei Akoto, Finnur Tómas Pálmason, Eiður Gauti Sæbjörnsson, Aron Sigurðarson (fyrirliði), Luke Morgan Conrad Rae, Amin Cosic, Ástbjörn Þórðarson, Arnór Ingvi Traustason, Hrafn Tómasson, Orri Hrafn Kjartansson

Stefan Ljubicic er aftur mættur í byrjunarlið Keflavíkur

Stefan Ljubicic er aftur mættur í byrjunarlið Keflavíkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2Fram15+1333
3KR15+1732
4Breiðablik14+825
5Valur16-619
6Keflavík14-716
7Stjarnan14-315
8ÍBV14-715
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.