Fotbolti.net
28.06.26 - 16:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kjarninn

Byrjunarlið Þórs og Vals: Þrír snúa aftur eftir bann - Sex breytingar

Lúkas snýr aftur hjá Val.

Lúkas snýr aftur hjá Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 17:00 hefjast þrír leikir í Bestu deildinni og einn af þeim er viðureign Þórs og Vals á VÍS-vellinum á Akureyri.

Þór situr í 11. sæti fyrir leikinn og Valur er í 5. sæti með níu stigum meira en Þór. Bæði lið gerðu 1-1 jafntefli í síðustu umferð, Þór gegn FH á útivelli og Valur gegn Keflavík á heimavelli.
Daníel Freyr spáir í 12. umferð Bestu deildarinnar
TENGT EFNI

Daníel Freyr spáir í 12. umferð Bestu deildarinnar

Lestu um leikinn: Þór 0 - 2 Valur
Siggi Höskulds, þjálfari Þórs, gerir þrjár breytingar á sínu liði frá leiknum gegn FH. Bjarni Guðjón Brynjólfsson og Christian Greko Jakobsen snúa aftur eftir leikbann og Sverrir Páll Ingason kemur sömuleiðis inn í liðið. Hermann Helgi Rúnarsson og Ingimar Arnar Kristjánsson taka sér sæti á bekknum en Kristófer Kató Friðriksson er ekki með í dag. Sigfús Fannar Gunnarsson snýr aftur á bekkinn en Atli Sigurjónsson er ekki með.

Hemmi Hreiðars, þjálfari Vals, gerir sömuleiðis þrjár breytingar frá leiknum gegn Keflavík. Lúkas Logi Heimisson snýr aftur eftir leikbann og þeir Markus Nakkim og Hörður Ingi Gunnarsson koma einnig inn í liðið. Kristján Oddur Kristjánsson, Jakob Franz Pálsson og Ólafur Flóki Stephensen taka sér sæti á bekknum. Adam Ægir Pálsson er áfram á varamannabekknum.

Byrjunarlið Þór

Aron Birkir Stefánsson (fyrirliði), Ásbjörn Líndal Arnarsson, Yann Emmanuel Affi, Einar Freyr Halldórsson, Kristófer Kristjánsson, Bjarni Guðjón Brynjólfsson, Fannar Daði Malmquist Gíslason, Sverrir Páll Ingason, Vilhelm Ottó Biering Ottósson, Ágúst Eðvald Hlynsson, Christian Jakobsen

Byrjunarlið Valur

Frederik August Albrecht Schram, Hörður Ingi Gunnarsson, Markus Lund Nakkim, Jónatan Ingi Jónsson, Ingimar Torbjörnsson Stöle, Tryggvi Hrafn Haraldsson, Albin Skoglund, Hólmar Örn Eyjólfsson (fyrirliði), Lúkas Logi Heimisson, Myles A Veldman, Samúel Kári Friðjónsson

Greko mættur aftur eftir tveggja leikja bann.

Greko mættur aftur eftir tveggja leikja bann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jakob Franz er uppalinn Þórsari og hann er á bekknum hjá Val.

Jakob Franz er uppalinn Þórsari og hann er á bekknum hjá Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.13+3837
2KR12+1528
3Fram11+523
4Breiðablik12+619
5Valur12-416
6ÍA11-515
7Keflavík11-712
8Stjarnan12-511
9ÍBV11-511
10KA11-610
11Þór11-197
12FH11-136
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.