Fotbolti.net
28.06.26 - 12:30
Brynjar Ingi Erluson

Como býður 23 milljónir punda í enska landsliðsmanninn

Como býður 23 milljónir punda í enska landsliðsmanninn
Canon

Mynd: EPA

Ítalska félagið Como hefur lagt fram 23 milljóna punda tilboð í enska landsliðsmanninn Trevoh Chalobah, sem er á mála hjá Chelsea á Englandi.
Chalobah er 26 ára gamall miðvörður sem spilaði 47 leiki og skoraði þrjú mörk með Chelsea á síðustu leiktíð.

Sky á Ítalíu segir Como vilja fá hann í sínar raðir fyrir komandi tímabil og að félagið hafi lagt fram formlegt 23,3 milljóna punda tilboð í leikmanninn. Árangurstengdar greiðslur eru hluti af þeirri upphæð en Chelsea vill fá heildarpakka upp á 30 milljónir punda.

Viðræður eru í fullum gangi á milli félaganna og líklegt er að reynt verði að finna milliveg.

Chalobah var á dögunum kallaður inn í enska landsliðshópinn eftir að Tino Livramento meiddist. Hann var á bekknum gegn bæði Gana og Panama í riðlakeppninni, en kom ekki við sögu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.