Ólafur Ingi: Ósammála fólki úti í bæ sem talar um einhverja gjá
Auglýsing

Ólafur Ingi Skúlason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar fagna fyrsta markinu í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikil barátta.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Ingi Skúlason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik tryggði sig í úrslitaleik Mjólkurbikarsins fyrr í dag er liðið lagði Íslandsmeistara Víkings að velli, 3-0. Liðið hefur ekki leikið til úrslita í bikarkeppni síðan 2018.
Fótbolti.net ræddi við Ólaf Inga Skúlason, þjálfara Breiðabliks, eftir sigurinn á Víkingi.
Fótbolti.net ræddi við Ólaf Inga Skúlason, þjálfara Breiðabliks, eftir sigurinn á Víkingi.
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 0 Víkingur R.
„Fólk úti í bæ talar um einhverja gjá, að það sé rosalega langt á milli þessara liða. Ég er bara ósammála því. Ég veit að taflan lýgur ekki, en það er á okkur. Við þurfum að passa upp á að þetta sé orkustigið og þetta sé viljinn í hverjum einasta leik,“ segir Óli og er umrædd gjá eflaust skírskotun í umfjöllun Fótbolta.net eftir viðureign liðanna á fimmtudag.

„Á milli leikja og í leikjum megum við ekki missa það niður. Þegar við erum aggressívir, hugrakkir og þorum þá erum við mjög góðir. Það er undir okkur komið að mæta þannig til leiks. Það sem Víkingar hafa verið góðir í er að þeir eru öflugir í því að slaka aldrei á,“ sagði Ólafur jafnframt.
Skrifað í skýin
Breiðablik mætir annað hvort Fylki eða Aftureldingu í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Ólafur er sjálfur uppalinn í Fylki og vann bikarinn með liðinu.
„Ég á erfitt með að pæla í því. Auðvitað væri það mjög sérstakt fyrir mig. Ég held að það séu 25 ár frá því að ég vann bikarmeistaratitilinn með Fylki. Það væri auðvitað eitthvað sem væri skrifað í skýin. Það er langt í þetta og þýðir ekkert að hugsa út í það.“

TENGT EFNI
Gjáin sem stækkaði á Kópavogsvelli