27.06.26
Gjáin sem stækkaði á Kópavogsvelli
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Eftir 13 leiki í Bestu deildinni eru Víkingar með 37 stig, 45 mörk skoruð og aðeins sjö mörk fengin á sig. Þeir hafa unnið 12 af 13 leikjum sínum og eru enn taplausir.
Eini leikurinn hingað til í sumar hjá Víkingum sem vannst ekki var leikur gegn Breiðabliki í fyrstu umferð Bestu deildarinnar sem endaði með 1-1 jafntefli. Breiðablik og Víkingur mættust svo aftur í vikunni og þá unnu Víkingar þægilegan sigur.
Víkingur og Breiðablik hafa á síðustu árum skipst á að vinna Bestu deildina og hafa spilað marga spennandi leiki - verið miklir keppinautar. Núna, miðað við frammistöðu í leikjunum tveimur, virðist þó vera komin gjá á milli liðanna og hún stækkaði síðasta fimmtudag á Kópavogsvelli. Liðin standa allavega ekki jafnfætis í dag en það munar 18 stigum á þeim í töflunni. Hvernig varð þessi munur svona mikill?