Opta setur saman lið riðlakeppninnar - Grænhöfðaeyjar með flesta fulltrúa

Vozinha er í markinu en hann og Diney Borges eru fulltrúar Grænhöfðaeyja

Mynd: EPA

Lionel Messi er að sjálfsögðu í liðinu

Breska greiningarfyrirtækið Opta hefur valið lið riðlakeppninnar á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Nýliðar Grænhöfðaeyja eru með flesta fulltrúa í liðinu eða tvo talsins.
Grænhöfðaeyjar hafa komið verulega á óvart á HM. Liðið er taplaust eftir riðlakeppnina þar sem það gerði meðal annars jafntefli við Spán og Úrúgvæ.
Markvörðurinn Vozinha hefur farið á kostum, þá sérstaklega gegn Spáni þar sem hann átti margar frábærar vörslur.
Hann er í markinu í úrvalsliði riðlakeppninnar að mati Opta og miðvörðurinn Diney Borges er einnig í liðinu. Hann hefur sömuleiðis verið stórkostlegur, enda hefði Vozinha ekki getað gert þetta án hans og varnarinnar fyrir framan sig.
Stór nöfn á borð við Lionel Messi, Erling Braut Haaland, Vinicius Junior og Kylian Mbappe eiga einnig sæti í liðinu.
Weston McKennie, miðjumaður Juventus, er fulltrúi gestgjafa Bandaríkjanna og Pedro Vite, miðjumaður Ekvador, er með honum á miðsvæðinu.
Hinir þrír í liðinu eru Keito Nakamura, leikmaður Reims og Japans, Pau Cubarsi, miðvörður Barcelona og Spánar, og Marvin Senaya, hægri bakvörður Auxerre og Gana.
Úrvalslið riðlakeppninnar: Vozinha (Grænhöfðaeyjar), Marvin Senaya (Gana/Auxerre), Pau Cubarsi (Spánn/Barcelona), Diney Borges (Grænhöfðaeyjar/Al-Bataeh), Keito Nakamura (Japan/Reims), Weston McKennie (Bandaríkin/Juventus), Pedro Vite (Ekvador/Pumas), Lionel Messi (Argentína/Inter Miami), Vinicius Jr. (Brasilía/Real Madrid), Erling Haaland (Noregur/Man City), Kylian Mbappe (Frakkland/Real Madrid).

The group stage of the 2026 World Cup is done, so we've had a whirl at picking a best XI for the tournament so far.
— Opta Analyst (@OptaAnalyst) June 28, 2026
Which players stood out for you? pic.twitter.com/slFiXyT3fW

Lionel Messi er að sjálfsögðu í liðinu

Mynd: EPA