Fotbolti.net
28.06.26 - 16:34
Brynjar Ingi Erluson

Slæmar fréttir fyrir Ugarte og Man Utd

Slæmar fréttir fyrir Ugarte og Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Manuel Ugarte, miðjumaður Manchester United og úrúgvæska landsliðsins, verður lengi frá keppni eftir að hafa meiðst á hné í lokaleik Úrúgvæ í riðlakeppni heimsmeistaramótsins. Þetta staðfestir enska félagið á heimasíðu sinni.
Ugarte fór meiddur af velli undir lok fyrri hálfleiks í mikilvægum leik Úrúgvæ gegn Evrópumeisturum Spánar.

Man Utd staðfestir á heimasíðu sinni að Ugarte hafi meiðst alvarlega á liðbandi í hné og óskar honum skjóts bata.

Þetta eru hræðilegar fréttir fyrir Ugarte en einnig fyrir Manchester United, sem hafði verið að íhuga að selja hann í sumarglugganum.

Ugarte á enn þrjú ár eftir af samningi sínum við United og félagið á möguleika á að framlengja hann um eitt ár til viðbótar.

Meiðslin setja áætlanir United í uppnám en félagið hafði ætlað sér að styrkja miðsvæðið verulega í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.