Fotbolti.net
28.07.05 - 14:39
Magnús Már Einarsson

Vugovic til Víkings R. (Staðfest)

Fá liðsstyrk.

Fá liðsstyrk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Víkingur R. hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir lokabaráttuna í 1.deild karla en liðið hefur samið við Bojan Vukovic frá Serbíu og Svartfjallalandi. Hann mun klára tímabilið með liðinu en þetta staðfesti Sigurður Jónsson þjálfari Víkinga við Fótbolti.net í dag.
Vukovic sem er fæddur árið 1979 er örfættur leikmaður sem leikur ýmist á miðju eða frammi. Hann er 185 cm á hæð og er hann góður vinur varnarmannsins Milos Glogovac.

Víkingar eru sem stendur í 2.sæti í 1.deildinni með 25 stig en liðið ætlar að reyna að endurheimta sæti sitt í Landsbankadeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.