28.07.05 - 20:27
Magnús Már Einarsson
Tacchinardi til Villareal (Staðfest)

Tacchinardi í baráttu við Rafael van der Vaart.

Tacchinardi í baráttu við Rafael van der Vaart.

Alessio Tacchinardi hefur gert eins árs samning við spænska liðið Villareal. Þessi þrítugi miðjumaður kemur til Villareal eftir 11 ára dvöl hjá Juventus.
Tacchinardi sem var á sínum tíma í ítalska landsliðinu vann meðal annars Serie A fimm sinnum á tíma sínum hjá Juventus. Hann var ekki með liðinu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 1996 en lék með þegar að liðið tapaði í úrslitunum 1997, 1998 og 2003.
Tacchinardi er þriðji leikmaðurinn sem Villareal fær í sumar en markvörðurinn Mariano Barbosa og miðjumaðurinn Antonio Valencia hafa einnig gengið til liðs við félagið sem endaði í 3.sæti í La Liga á síðustu leiktíð.