Laugi: Þetta mark var vafasamt
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er ekki ánægður. Ég hélt að við værum að landa þessu og ná í þrjú stig áður en við fengum á okkur leiðindamark í blálokin,\" sagði Guðlaugur Baldursson þjálfari Keflavíkinga eftir 3-3 jafntefli gegn Fylki í Inkasso-deildini í gærkvöldi.
Ragnar Bragi Sveinsson jafnaði fyrir Fylki á 87. mínútu en Keflvíkingar vildu meina að brotið hefði verið á Marko Nikolic í aðdraganda marksins.
„Við erum svekktir með að fá mark á okkur þetta seint í leiknum. Frá okkur séð var þetta mark vafasamt.\"
Lasse Rise skoraði tvö mörk fyrir Keflavík í leiknum í gær en hann kom til félagsins frá Danmörku í síðustu viku.
„Við fengum Lasse til lið við okkur til að skora og búa til mörk. Hann gerði það mjög vel í dag. Hann verður okkur mikilvægur ef hann nær að halda því áfram.\"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.