Fotbolti.net
28.07.21 - 22:06
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir

Alfreð: Ég veit eiginlega ekki hvar við vorum í dag

Auglýsing
Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari Selfoss

Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari Selfoss

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss í Pepsi Max deild kvenna, kom svekktur í viðtal eftir að Selfoss tapaði 2-1 á móti Stjörnunni á Samsungvellinum í Garðabæ í kvöld.
„Mjög slakur að okkar hálfu, mjög slakur bara mjög óvanalegt að sjá hvernig við spiluðum, náðum ekki að tengja sendingar á milli og þetta var bara mjög slakt."

Hvað fannst þér vanta upp á í dag?

„Bara eins og ég segi, það vantaði hungrið og að tengja sendingarnar. Ég veit eiginlega ekki hvar við vorum í dag það er bara þannig, við vorum mjög ólíkar sjálfum okkur og okkur langaði að klára þennan leik og komast í gott frí með sigri en það er með tapi, mjög ósáttar bara með okkar frammistöðu í dag."

Viðtalið við Alfreð má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.