27.07.26 - 23:58
Brynjar Ingi Erluson
Viðræður um Barcola í burðarliðnum

Bradley Barcola

Mynd: EPA

Bradley Barcola

Mynd: EPA
Liverpool mun líklega hefja formlegar viðræður við Paris Saint-Germain um franska vængmanninn Bradley Barcola á næstu dögum.
Barcola er efstur á óskalista Liverpool í sumar og er sagður opinn fyrir því að ganga til liðs við félagið.
Hann hefur þegar tilkynnt PSG að hann ætli ekki að framlengja samning sinn sem rennur út eftir tvö ár.
Liverpool hefur átt óformlegar viðræður við PSG um Barcola en samkvæmt Ben Jacobs er líklegt að félögin setjist formlega að samningaborðinu á næstunni.
PSG er sagt ætla að setja 170 milljóna evra verðmiða á leikmanninn. Liverpool telur þá kröfu óraunhæfa og er sannfært um að hægt verði að semja um töluvert lægra verð.
Liverpool reyndi að fá hinn 23 ára gamla Barcola á síðasta ári þegar hann var metinn á 85 milljónir evra og er ekki tilbúið að greiða tvöfalt hærri upphæð aðeins ári síðar.
PSG horfir til kaupverðsins á Morgan Rogers, sem fór frá Aston Villa til Chelsea, og Elliot Anderson, sem gekk til liðs við Manchester City frá Nottingham Forest.
Liverpool telur sig þó vera í sterkri samningsstöðu þar sem Barcola vill ekki framlengja. Gefi PSG ekkert eftir á verðinu á félagið á hættu að þurfa að selja hann fyrir mun lægri upphæð næsta sumar þegar aðeins eitt ár verður eftir af samningi hans.