Fotbolti.net
28.07.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Ísland í dag - Víkingur getur spyrnt sér af botninum

Ísland í dag - Víkingur getur spyrnt sér af botninum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tveir leikir fara fram í Bestu deild kvenna í kvöld, en Víkingur á möguleika á því að spyrna sér af botninum þegar liðið heimsækir Þrótt.
Víkingur situr á botni deildarinnar með tíu stig en Þróttur er í sjötta sæti með 13 stig.

Með sigri geta Víkingar lyft sér upp í áttunda sæti. Þróttarar geta hins vegar komist upp í það fimmta með þremur stigum.

Stjarnan tekur á móti Grindavík/Njarðvík á Samsung-vellinum. Stjarnan er í þriðja sæti með 21 stig en sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur situr í fimmta sæti með 15 stig.

Í Lengjudeild karla heimsækir Njarðvík botnlið Ægis. Ægismenn eru aðeins með átta stig en Njarðvík er í fimmta sæti með 23 stig.

Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Haukum mæta ÍA í Lengjudeild kvenna. Þá er einnig leikið í 3. og 4. deild karla.

Leikir dagsins:

Besta kvenna
19:15 Þróttur R.-Víkingur R. (AVIS völlurinn)
19:15 Stjarnan-Grindavík/Njarðvík (Samsungvöllurinn)

Lengjudeild karla
19:15 Ægir-Njarðvík (GeoSalmo völlurinn)

Lengjudeild kvenna
19:15 Haukar-ÍA (BIRTU völlurinn)

3. deild karla
18:00 Tindastóll-Höttur (Sauðárkróksvöllur)

4. deild karla
19:15 Árborg-Vængir Júpiters (JÁVERK-völlurinn)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH12+2529
2Breiðablik12+2227
3Stjarnan12+521
4ÍBV12-120
5Grindavík/Njarðvík12-715
6Þróttur R.12-513
7Fram12-1213
8Þór/KA12-512
9Valur12-1010
10Víkingur R.12-1210
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.