28.07.26 - 06:00
Auglýsingar
Stjarnan leitar að nýjum yfirþjálfara yngri flokka

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Knattspyrnudeild Stjörnunnar leitar að drífandi og öflugum yfirþjálfara í fullt starf. Hlutverk yfirþjálfara er að leiða faglegt starf barna- og unglinga knattspyrnudeildarinnar, styðja við þjálfara og tryggja samfellda og markvissa þróun leikmanna frá yngstu flokkum og alla leið upp í meistaraflokka.
Þetta er spennandi og fjölbreytt starf í metnaðarfullu umhverfi þar sem reynir á leiðtogahæfileika, fagmennsku og sterka samskipta- og skipulagshæfni. Yfirþjálfari vinnur náið með þjálfurum, framkvæmdastjóra, starfsfólki, foreldrum og stjórn að því að efla starfsemi deildarinnar og skapa framúrskarandi umhverfi fyrir iðkendur og þjálfara.
Yfirþjálfari ber ábyrgð á faglegri stefnumótun og framkvæmd þjálfunar í barna- og unglingastarfi. Hann tryggir samfellu í þjálfun, leikstíl og verklagi milli flokka, leiðir þróun þjálfara og stuðlar að því að Stjarnan verði áfram í fremstu röð.

Helstu verkefni og ábyrgð
· Leiða faglegt starfs barna- og unglingastarfs knattspyrnudeildar
· Styðja við og þróa þjálfara með markvissri handleiðslu og fræðslu
· Tryggja samfellu í þjálfun, leikstíl og verklagi milli flokka og aldursstiga
· Taka virkan þátt í þjálfun á vellinum og vera sýnilegur í daglegu starfi með þjálfurum og iðkendum
· Hafa umsjón með greiningar- og afreksstarfi, markmiðasetningu og eftirfylgni með þróun leikmanna
· Leiða leikmannaþróun og tryggja skýra leið leikmanna frá yngri flokkum upp í meistaraflokka
· Skipuleggja og samræma starfsemi í samstarfi við starfsmenn félagsins
· Efla samskipti og upplýsingagjöf til foreldra og vinna með foreldraráðum.
· Tryggja fagleg vinnubrögð, skráningar og notkun þeirra tæknilausna sem styðja við starfsemina.
Menntunar- og hæfniskröfur
· KSÍ A-gráða (UEFA A) og/eða UEFA Elite Youth A-gráða
· Reynsla af þjálfun barna og unglinga er skilyrði
· Mikil hæfni í mannlegum samskiptum ásamt sterkum leiðtoga- og skipulagshæfileikum.
· Frumkvæði, jákvætt viðhorf og metnaður til að ná árangri
· Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Baldvin Sturluson framkvæmdastjóri UMF Stjörnunnar, [email protected].