Fotbolti.net
27.07.26 - 22:16
Stefán Marteinn Ólafsson

Linta: Eftir markið þá var þetta kannski aðeins of mikill eltingarleikur

Auglýsing
Aleksandar Linta þjálfari ÍBV

Aleksandar Linta þjálfari ÍBV

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV mætti Breiðablik á Eikarvellinum í Kópavogi í kvöld þegar lokaleikir 16. umferðar Bestu deild karla fóru fram.

Eftir markalausan fyrri hálfleik náði Breiðablik að pota inn sigurmarki og fara með eins marks sigur í kvöld.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 0 ÍBV

„Ég var ánægður með hvernig þetta gekk í fyrri hálfleik" sagði Aleksandar Linta þjálfari ÍBV eftir tapið í kvöld.

„Við vorum mjög þéttir varnarlega og sóknarlega þá áttum við færi sem fór í stöngina. Breiðablik er auðvitað frábært lið og ég vill óska þeim til hamingju með sigurinn og stigin þrjú" 

„Í seinni hálfleik var ég ekki nógu ánægður og þá sérstaklega í upphafi seinni hálfleiks þá vorum við mjög slappir, ekki nógu aggressívir og það var langt á milli manna og það kostaði okkur og við gefum þeim mark" 

„Eftir markið þá var þetta kannski aðeins of mikill eltingarleikur. Við hættum að ná stjórn á boltanum jafn mikið og við vorum að reyna þvinga þetta og ná inn jöfnunarmarki en yfirleitt þegar þú ert að reyna þvinga þetta þá færðu lítið út úr því" 

„Við fengum þó eitt eða tvö færi sem við hefðum mögulega geta náð að koma inn marki en ég var ánægður með frammistöðuna í fyrri hálfleik þó svo ég hafi ekki verið ánægður með úrslitin og seinni hálfleikinn" sagði Aleksandar Linta.

Nánar er rætt við Aleksandar Linta þjálfara ÍBV í spilaranum hér fyrir ofan.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram16+1334
4Breiðablik16+929
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍA16-818
8ÍBV16-816
9Stjarnan16-1215
10KA15-814
11FH16-1113
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.