28.07.26 - 18:41
Ívan Guðjón Baldursson
Ingimar kominn til Árósa (Staðfest)

Mynd: Aarhus Fremad

Mynd: Aarhus Fremad
Danska B-deildarliðið Aarhus Fremad er búið að festa kaup á Ingimar Arnari Kristjánssyni sem kemur úr röðum Þórs.

TENGT EFNI
Ingimar Arnar seldur til Danmerkur
Ingimar er uppalinn hjá Þór og hefur skorað 23 mörk í 108 meistaraflokksleikjum fyrir félagið þrátt fyrir ungan aldur, en hann er fæddur 2005 og skoraði þrjú mörk í ellefu leikjum í Bestu deildinni í sumar.
Ingimar er fluttur til Árósa og gerir þriggja ára samning við félagið, sem byrjaði nýtt deildartímabil á sigri um helgina.
Lauritz Hörby, yfirmaður fótboltamála hjá Aarhus Fremad, er mjög hrifinn af Ingimar og vonast til að hann muni koma til með að styrkja sóknarleik liðsins.
„Ingimar er afar spennandi ungur leikmaður sem við höfum mikla trú á. Við búumst við miklu af honum bæði í nútíð og framtíð," sagði Hörby meðal annars við undirskriftina.
„Við óskum Ingimar til hamingju með þetta skref á sínum ferli og hlökkum til að fylgjast með honum í nýju verkefni," segir í tilkynningu frá Þór.