Fotbolti.net
28.10.26 - 11:51
Elvar Geir Magnússon

Kai Rooney með fernu fyrir U18 lið Man Utd

Kai Rooney með fernu fyrir U18 lið Man Utd
Canon

Mynd: instagram/kairooney.10

Kai Rooney, sonur Wayne Rooney, skoraði fjögur mörk fyrir U18 lið Manchester United í leik gegn Burnley í gær.

Þessi 16 ára leikmaður var besti maður vallarins þegar lið Darren Fletcher vann 6-0 sigur. Hann skoraði fyrstu fjögur mörk leiksins, en liðsfélagar hans, Jaume Camacho-Sidos og Noah Ajayi, bættu einnig við mörkum á síðustu tíu mínútum leiksins.
Hægri kantmaðurinn Kai Rooney hefur verið hluti af akademíu United frá því hann sneri aftur til félagsins árið 2020 og lék sinn fyrsta leik fyrir U21 liðið fyrr í þessum mánuði.

Faðir hans, Wayne Rooney, er goðsögn hjá United; hann lék 559 leiki fyrir félagið á árunum 2004 til 2017, skoraði 253 mörk í öllum keppnum sem er met og vann fimm titla í ensku úrvalsdeildinni ásamt Meistaradeild Evrópu árið 2008.




Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.