Lið vikunnar í enska - Gylfi að sjálfsögðu með

Paul Robinson (Burnley) - Fékk óvænt sénsinn í fjarveru Tom Heaton. Varði vel gegn City og átti þátt í marki Burnley.

Mynd: Getty Images

Antonio Valencia (Man Utd) - Með öflugri mönnum Man Utd gegn West Ham.

Mynd: Getty Images

Virgil van Dijk (Southampton) - Frábær í vörninni gegn Everton.

Mynd: Getty Images

Angelo Ogbonna (West Ham) - Hjálpaði Hömrunum að ná í stig á Old Trafford.

Mynd: Getty Images

James Milner (Liverpool) - Átti góðan dag gegn Sunderland og innsiglaði 2-0 sigur Liverpool með marki úr vítaspyrnu.

Mynd: Getty Images

Victor Moses (Chelsea) - Heldur áfram að slá í gegn í 3-4-3 kerfinu hjá Chelsea. Skoraði sigurmarkið gegn Tottenham.

Mynd: Getty Images

Fernandinho (Man City) - Átti frábæran dag í sigri City á Burnley.

Mynd: Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson (Swansea) - Átti þátt í öllum fimm mörkunum þegar Swansea sigraði Crystal Palace. Skoraði eitt úr aukaspyrnu.

Mynd: Getty Images

Leroy Fer (Swansea) - Skoraði tvö mörk í leiknum dramatíska gegn Palace.

Mynd: Getty Images

Alexis Sanchez (Arsenal) - Skoraði tvívegis í sigrinum á Bournemouth í gær.

Mynd: Getty Images

Sergio Aguero (Man City) - Argentínumaðurinn skoraði tvö um helgina og er nú með 33 mörk í síðustu 34 leikjum í úrvalsdeildinni.

Mynd: Getty Images




