Fotbolti.net
28.11.26 - 17:03
Brynjar Ingi Erluson

Davíð Kristján og félagar á siglingu - Hilmir skoraði

Davíð Kristján er á toppi pólsku B-deildarinnar

Davíð Kristján er á toppi pólsku B-deildarinnar

Canon

Mynd: Polonia Warszawa

Davíð Kristján Ólafsson er að njóta lífsins hjá Polonia Warszawa í pólsku B-deildinni, en liðið vann 3-1 sigur á Odra Opole í dag og hefur nú leikið níu deildarleiki í röð án taps.
Blikinn var að sjálfsögðu í byrjunarliði Polonia, sem stefnir ótrautt upp í úrvalsdeildina.

Polonia hefur verið á miklu skriði að undanförnu og er taplaust í síðustu níu leikjum, þar sem liðið hefur unnið fimm leiki og gert fjögur jafntefli.

Liðið trónir á toppi B-deildarinnar með 29 stig, þremur stigum meira en næsta lið.

Benoný Breki Andrésson kom þá inn á undir lok leiks hjá Stockport County, sem tapaði 2-1 fyrir Leyton Orient í ensku C-deildinni.

Þetta var fyrsta deildartap Stockport síðan í lok október, en liðið heldur þó toppsætinu með 32 stig.

Hilmir Rafn Mikaelsson var á skotskónum með Sigma sem tapaði fyrir Mlada Boleslav, 3-2, í tékknesku úrvalsdeildinni. Sigma er í 6. sæti með 24 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.