Liverpool er í viðræðum við Birmingham um kaup á markverðinum unga Jack Butland. Butland er 19 ára gamall og var í landsliðshópi Englands á EM síðasta sumar. Southampton reyndi að kaupa hann fyrir yfirstandandi tímabil en það tókst ekki.
Stjórnarformaður Birmingham hefur staðfest að viðræður séu í gangi við Liverpool en Birmingham þarf á hverri aunustu lausu krónu að halda vegna fjárhagsvandamála. Everton hefur einnig verið orðað við Butland.
Pepe Reina hefur verið talsvert í umræðunni en frammistaða hans á tímabilinu hefur verið undir væntingum.
Athugasemdir