
Markvörðurinnn Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir sem varð Íslandsmeistari með Þór/KA síðast haust varði óvænt mark Vals gegn ÍBV í Lengjubikarnum í dag.
Bryndís Lára tilkynnti eftir tímabilið í fyrra að hún hafi tekið ákvörðun um að leggja skóna á hilluna og snúa sér að frjálsum íþróttum. Í stað hennar gekk Helena Jónsdóttir í raðir Þórs/KA frá Hömrunum.
Bryndís sagði við Fótbolta.net í dag að hún hafi ákveðið að aðstoða sitt gamla félag þessum leik því Sandra Sigurðardóttir er meidd.
„Sandra er meidd og ég hljóp í skarðið, ég er bara að aðstoða gamla félaga," sagði Bryndís Lára sem er ekki með þessu að byrja aftur í fótboltanum.
„Hanskarnir eru ennþá á hillunni," sagði hún en útilokaði þó ekki að bjarga Val aftur í næstu leikjum enda óvissa um hversu lengi Sandra verður frá keppni. „Við byrjum á þessum leik og tökum stöðuna aftur í næstu viku."
Íslenska landsliðið heldur til Króatíu á mánudaginn þar sem það verður við æfingar fyrir leikinn við Slóveníu í undankeppni HM 2018 föstudaginn 6. apríl og svo í Færeyjum nokkrum dögum síðar. Sandra er í þeim hóp og í ljósi þessa er óljóst hvort hún fari með. Bryndís sagðist aðspurð ekki hafa heyrt í Frey Alexanderssyni landsliðsþjálfara.
„Nei ekki enn. En ég er alltaf klár í ævintýri," sagði hún að lokum.
Athugasemdir