Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 29. mars 2021 19:35
Victor Pálsson
Yfirlýsing frá Aguero: Fylgir þessu mikil ánægja og stolt
Mynd: Getty Images
Sergio Aguero er á förum frá Manchester City en hann kveður félagið eftir tíu ára dvöl á Etihad.

Bæði Aguero og Man City staðfestu þessar fregnir í kvöld en Argentínumaðurinn verður samningslaus í sumar og fer á frjálsri sölu.

Aguero gaf út stutta yfirlýsingu á samskiptamiðla í kvöld þar sem hann ræðir aðeins tíma sinn hjá félaginu.

Aguero tekur fram að hann muni leggja sig 100 prósent fram út þetta tímabil og fer metnaðarfullur inn í nýja áskorun.

„Það fylgir því mikil ánægja og stolt að hafa spilað fyrir Manchester City í tíu tímabil sem er óvenjulegt fyrir atvinnumann á þessum tímum," sagði Aguero.

„Tíu tímabil er mikið afrek og á þeim tíma náði ég að verða markahæstur í sögu félagsins og mynda ódauðleg tengsl við alla þá sem elska félagið - fólk sem mun alltaf eiga stað í mínu hjarta."

„Ég kom á uppbyggingartímanum árið 2011 og með hjálp eiganda félagsins og margra leikmanna þá skráðum við okkur í bækurnar sem eitt besta lið heims."


Athugasemdir
banner
banner
banner