15.09.26 - 22:16
Brynjar Ingi Erluson
Fær veglegt hrós frá Arteta

Max Dowman átti stórleik í kvöld

Mynd: EPA

Mikel Arteta var ánægður með margt í leik sinna manna

Mynd: EPA

Max Dowman átti stórleik í kvöld

Mynd: EPA
Hinn 16 ára gamli Max Dowman fór á kostum með Arsenal í 4-2 sigri á Ipswich í enska deildabikarnum í kvöld. Hann skoraði tvö mörk og var það fyrra sérlega glæsilegt.

TENGT EFNI
Enski deildabikarinn: Liverpool sló út Tottenham - 16 ára í aðalhlutverki hjá Arsenal
Dowman fékk mínútur með Arsenal á síðustu leiktíð og heillaði alla upp úr skónum.
Arteta gaf honum tækifærið í byrjunarliðinu í kvöld og sá svo sannarlega ekki eftir því, en hinn 16 ára gamli Dowman lék á als oddi. Í fyrra markinu dansaði hann framhjá varnarmanni Ipswich og kláraði af öryggi.
„Hann er 16 ára og við sjáum þetta í raun mjög sjaldan í ensku úrvalsdeildinni. Við viljum þróa hann í þessu umhverfi en þurfum um leið að hugsa vel um hann.“
„Það er ótrúlegt að fylgjast með honum því hann er svo óútreiknanlegur. Hann getur farið í hvora áttina sem er og er svo lipur. Það er mjög ánægjulegt að horfa á hann,“ sagði Arteta.
Arteta var einnig ánægður með frammistöðu liðsins í heild og sérstaklega nokkurra leikmanna.
„Ég er mjög ánægður með margt úr leiknum, hvernig við spiluðum og héldum skriðþunganum. Einstaklingsframmistaða sumra var mjög góð og allt í allt var þetta gott kvöld.“
Arteta vill að Arsenal berjist um alla titla á tímabilinu og segir sama hugarfar þurfa að fylgja liðinu í hverja keppni.
„Þetta er það sem við viljum gera, að mæta í hvern einasta leik og hverja keppni með sama hugarfari, viðhorfi og þrá. Það er nákvæmlega það sem við erum að gera,“ sagði hann að lokum.