Kjartan Henry vill spila áfram á Miðvellinum: Það er ekkert grín


Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir


Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Bara geggjað, geggjað að vinna, við erum ósigraðir á þessum frábæra heimavelli okkar sagði kampakátur maður leiksins, Kjartan Henry Finnbogason eftir 3-0 sigur FH á hans gömlu félögum í KR á Miðvelli FH í dag.
Vallaraðstæður eru ekki frábærar en mér fannst samt auðveldara og betra að spila boltanum heldur en á móti Stjörnunni en þetta er það sem var í boði og við fengum heimaleikinn okkar og stigin þrjú þannig að ég er ánægður með það
Taplausir á Miðvellinum, er þetta þá ekki bara völlurinn sem þið viljið spila á?
Jú ekki spurning og það er ekkert grín. Sé enga ástæðu til að fara eitthvað að breyta en ég ræð því ekki, kannski sem betur fer
Þú hefur spilað nokkra leiki gegn KR, hvernig var að skora á móti uppeldisfélaginu?
Skrítið en við spiluðum æfingaleik gegn þeim í vetur og ég skoraði líka eftir tvær mínútur þá þannig ég er búinn að rífa plásturinn ef að það þurfti en nú er ég bara í FH
Nánar er rætt við Kjartan Henry í sjónvarpinu hér að ofan.





