Fotbolti.net
29.04.25 - 14:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Henríetta í Þór/KA (Staðfest)

Henríetta í Þór/KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Þór/KA hefur fengið liðsstyrk því Henríetta Ágústsdóttir er gengin í raðir félagsins á láni frá Stjörnunni.

Henríetta verður tvítug eftir tæpan mánuð. Hún er miðjumaður sem uppalin er hjá HK en skipti yfir í Stjörnuna fyrir síðasta tímabil.

Hún lenti í slæmum meiðslum árið 2023 og missti af því tímabili. Á síðasta tímabili kom hún við sögu í öllum deildarleikjum Stjörnunnar og skoraði eitt mark.

Hún kom við sögu í fyrstu tveimur leikjum Stjörnunnar í ár en var ónotaður varamaður í sigrinum gegn Tindastóli á sunnudag.
Hin hliðin - Henríetta Ágústsdóttir (Stjarnan)
TENGT EFNI

Hin hliðin - Henríetta Ágústsdóttir (Stjarnan)

Stjarnan fékk liðsstyrk fyrr í dag þegar Snædís María Jörunsdóttir skipti yfir frá FH.

Henríetta gæti spilaði sinn fyrsta leik með Þór/KA á laugardag þegar FH kemur í heimsókn í Bogann. Hún er fyrrum unglingalandsliðskona, á að baki tólf leiki í íslensku treyjunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.