Newcastle hefur áhuga á Jóni Degi - Brighton reynir við Summerville - Tilboði Tottenha í Toney hafnað
   mið 29. maí 2024 09:12
Elvar Geir Magnússon
Meistaradeild Evrópu áfram á Stöð 2 Sport næstu árin
Meistaradeildin verður áfram á Stöð 2 Sport.
Meistaradeildin verður áfram á Stöð 2 Sport.
Mynd: Getty Images
Mynd: EPA
Herdís Dröfn Fjeldsted.
Herdís Dröfn Fjeldsted.
Mynd: Sýn
Eiríkur Stefán Ásgeirsson.
Eiríkur Stefán Ásgeirsson.
Mynd: Sýn
Evrópukeppnirnar í fótbolta verða áfram á Stöð 2 Sport og Viaplay en þetta kemur fram í tilkynningu frá Sýn, sem sjá má í heild hér að neðan.

Fréttatilkynning
Meistaradeild Evrópu áfram á Stöð 2 Sport

Sýn hf. og Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hafa undirritað samning um sýningarrétt á leikjum Meistaradeildar Evrópu, Evrópudeildar og Sambandsdeildar á Íslandi til næstu þriggja keppnistímabila. Samningurinn tekur gildi fyrir keppnistímabilið sem hefst í lok sumars 2024 og gildir það til loka keppnistímabilsins vorið 2027.

Samningurinn er um helming allra leikja í ofangreindum keppnum, líkt og síðastliðin þrjú ár. Viaplay hefur verið með sýningarréttinn á hinum helming leikjanna og verður sama fyrirkomulag áfram næstu þrjú keppnistímabilin. Stærstu viðburðir Viaplay, þar á meðal leikir í Meistaradeild Evrópu, verða áfram sýndir á Vodafone Sport sem er í eigu Sýnar hf. Meistaradeild Evrópu hefur verið kjölfesta í dagskrárgerð Stöðvar 2 Sports í þau tæp 30 ár sem stöðin hefur verið starfrækt og verður áfram næstu þrjú árin hið minnsta. Stöð 2 Sport hefur verið leiðandi í íslensku íþróttasjónvarpi á þeim tíma en meðal þess efnis sem er á stöðinni er Meistaradeild Evrópu, Evrópudeildin, Sambandsdeildin, Besta deild karla og kvenna, Subway deildir karla og kvenna, Lengjubikar karla og kvenna, FA Cup, Serie A, NBA, NFL, ACB, Masters, The Open, PGA Championship og LPGA.

Meistaradeild Evrópu er sterkasta deildarkeppni heims í fótbolta og tekur breytingum í upphafi næsta keppnistímabils. Liðum verður fjölgað í 36 og keppt samkvæmt nýju deildarfyrirkomulagi. Sterkustu lið Evrópu munu nú mætast fyrr á tímabilinu en áður var mögulegt auk þess sem að bæði leikjum og leikvikum fjölgar. Nýtt fyrirkomulag tryggir einnig mikla spennu á öllum stigum keppninnar, frá fyrsta leikdegi að hausti til úrslitaleiksins að vori.

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar hf.:
„Það er okkur mikið ánægjuefni að hafa náð samningum við Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, um áframhaldandi sýningarrétt frá bestu knattspyrnudeildum Evrópu. Stöð 2 Sport hefur lagt mikla áherslu á að vera leiðandi aðili í íþróttaútsendingum á Íslandi og útsendingar frá Meistaradeildinni, Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni hafa skipað þar meginhlutverk.

Stöð 2 og tengdir miðlar hafa boðið upp á hágæðaefni um langt skeið og samningar um úrvalsíþróttaefni, líkt og Meistaradeildina, sjá til þess að áskrifendur okkar njóta þess áfram um ókomin ár.“


Eiríkur Stefán Ásgeirsson, forstöðumaður íþróttadeildar Sýnar hf.
„Stöð 2 Sport hefur átt afar gott samband við UEFA til fjölda ára og hlökkum við til áframhaldandi samstarfs. Stöð 2 Sport mun eftir sem áður kappkosta við að bjóða upp á hágæðaútsendingar, bæði frá leikjum og umfjöllunarþáttum í öllum þremur keppnum.

Umgjörðin í dagskrárgerð Meistaradeildar Evrópu hefur stækkað með hverju árinu og mun gera áfram. Kappkostað verður að bjóða áskrifendum Stöðvar 2 Sports upp á besta íþróttaefni sem völ er á, bæði af innlendum og erlendum vettvangi, og skipar þar Meistaradeild Evrópu veigamikinn sess.“

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner