Fotbolti.net
07.09.26 - 14:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hjörvar: Dagur er mjög ósáttur og ég sé hann ekki halda áfram hjá Val

Skoraði og lagði upp gegn Keflavík.

Skoraði og lagði upp gegn Keflavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fótbolti.net sagði frá því í síðustu viku að Valur hefði hafnað tilboði Fredericia í Dag Orra Garðarsson. Valur var þá með 24 stig í deildinni þegar sex umferðir voru eftir, sjö stigum fyrir ofan fallsæti.

Eftir leikinn gegn Keflavík, þar sem Dagur Orri var valinn maður leiksins eftir að hafa bæði skorað og lagt upp í sigri Vals, er staðan óbreytt. Sjö stig eru niður í fallsæti. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafði staða liðsins í deildinni sitt að segja um þá ákvörðun Vals að hleypa Degi ekki til Danmerkur.

Eftir leikinn sagði Dagur við Fótbolta.net að hann væri „já og nei" svekktur yfir því að tilboðinu var hafnað. Hann er samningsbundinn Val út tímabilið 2030.
Dagur Orri fékk tilboð erlendis frá: Bæði svekktur og ekki svekktur
TENGT EFNI

Dagur Orri fékk tilboð erlendis frá: Bæði svekktur og ekki svekktur

Hjörvar Hafliðason sagði svo frá því í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í gær að tilboð Fredericia hefði hljóða upp á 30 milljónir króna.

„Dagur er mjög ósáttur, fékk ekki fara út til Danmerkur. Það var neitað tilboði í hann og honum tilkynnt það. Svo fara umboðsmaður Dags og Valur eitthvað að karpa, þetta eru 30 milljónir fyrir leikmann sem hefur ekki skorað mikið í efstu deild og þannig lagað ekki gert mikið í efstu deild ef við segjum hlutina eins og þeir eru. Það verður rosalegur hiti sem endar á því að Valur er til í að selja hann, en þá voru Danirnir (Fredericia) búnir að ganga frá öðrum leikmanni. Þeir þurftu að fá mann inn fyrir gluggalok. Dagur ætti að einbeita sér að því að skora eins mikið og hann getur núna, en ég sé hann ekki fyrir mér halda áfram í Val. Ég held það sé ekki hægt að laga þetta," segir Hjörvar í þættinum.

Sóknarmaðurinn er fæddur 2005 og hefur skorað fjögur mörk í þrettán leikjum á sínu fyrsta tímabili í efstu deild.

„Ég væri til í að taka annað tímabil hjá Val og verða 12-15 marka maður í þessari deild, hann hefur alla burði til þess. Ég skil alveg að vilja stökkva á það að fara út, þetta er kláði sem þig langar að klóra þér í, þarna var tækifæri sem kannski kemur ekki aftur. En mér finnst hann hafa alla burði til þess að geta orðið 50 milljóna króna leikmaður," segir Jóhann Már Helgason sem er stuðningsmaður Vals og fyrrum framkvæmdastjóri félagsins.
Hjörvar: Dagur er mjög ósáttur og ég sé hann ekki halda áfram hjá Val
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Hjörvar: Dagur er mjög ósáttur og ég sé hann ekki halda áfram hjá Val
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.