Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Elmar Kári spáir í 9. umferð Bestu deildarinnar
Elmar Kári Enesson Cogic.
Elmar Kári Enesson Cogic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ragnar Bragi Sveinsson gerði sér lítið fyrir og var með fjóra rétta þegar hann spáði í síðustu umferð Bestu deildarinnar.

Elmar Kári Cogic, leikmaður Aftureldingar, reynir fyrir sér núna þegar níunda umferðin fer af stað í kvöld.

FH 1 - 2 ÍA (19:15 í kvöld)
Menn þarna upp á skaga þurfa ekki nema að bomba a pönnuna á Viktori Jóns og þá endar tuðran í netinu, ætli þeir taki þetta ekki 1-2?

Fram 1 - 1 Breiðablik (19:15 í kvöld)
Það er smá jafnteflis fnykur yfir þessum leik, endar 1-1.

ÍBV 0 - 1 Keflavík (17:00 á sunnudag)
Keflvíkingar sækja stórglæsilegan iðnaðar sigur í Eyjum 0-1.

KR 4 - 0 KA (17:00 á sunnudag)
Sýningin í Vesturbænum heldur áfram! Egill frændi minn, stórlax í DJ bransanum og grjótharður KR-ingur segir að þeir taki þetta 4-0.

Þór 0 - 3 Stjarnan (17:00 á sunnudag)
Stjörnumenn sýna úr hverju þeir eru gerðir eftir brösulega byrjun og vinna þetta sannfærandi 0-3.

Valur 0 - 1 Víkingur R. (19:15 á sunnudag)
Eitthvað sem segir mér að Gylfi klíni honum í vinkilinn af 40 metrum og þeir taki þetta 0-1.

Fyrri spámenn:
Ragnar Bragi (4 réttir)
Gísli Gotti (4 réttir)
Júlíus Mar (3 réttir)
Stefán Þór (3 réttir)
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Siggi Raggi (3 réttir)
Kári Sigfússon (2 réttir)
Siggi Hall (1 réttur)
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 9 8 1 0 29 - 5 +24 25
2.    KR 9 7 1 1 33 - 20 +13 22
3.    Fram 8 5 2 1 21 - 13 +8 17
4.    Breiðablik 8 4 3 1 19 - 11 +8 15
5.    Valur 9 5 0 4 18 - 17 +1 15
6.    Keflavík 8 3 2 3 11 - 12 -1 11
7.    KA 8 3 1 4 9 - 10 -1 10
8.    ÍA 8 2 3 3 11 - 16 -5 9
9.    Stjarnan 9 2 1 6 15 - 21 -6 7
10.    Þór 8 2 0 6 6 - 20 -14 6
11.    FH 8 0 2 6 12 - 25 -13 2
12.    ÍBV 8 0 2 6 8 - 22 -14 2
Slapp