Fotbolti.net
22.04.26 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Siggi Raggi spáir í 3. umferð Bestu deildarinnar

Siggi Raggi er í dag þjálfari NSÍ Runavík í Færeyjum.

Siggi Raggi er í dag þjálfari NSÍ Runavík í Færeyjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tónlistarmaðurinn Ágúst Þór Brynjarsson var með þrjá rétta þegar hann spáði í aðra umferð Bestu deildarinnar.

Þriðja umferðin fer af stað strax í kvöld og tók Sigurður Ragnar Eyjólfsson að sér það verkefni að spá í spilin. Siggi Raggi er að gera frábæra hluti sem þjálfari NSÍ Runavíkur þessa stundina og situr á toppnum í færeyska fótboltanum.
Ísland í dag - Þrjú lið í leit að fyrsta sigrinum
TENGT EFNI

Ísland í dag - Þrjú lið í leit að fyrsta sigrinum

ÍA 2 - 1 KA (18:00 í kvöld)
Ég held að þetta verði baráttuleikur en ÍA hefur sigur á heimavelli. Deano aðstoðarþjálfari verður í banni og í rauðum bol í stúkunni að horfa á. Hann mun fagna sigri, sá hlær best sem síðast hlær! En án gríns þá er ÍA með gott lið og flott þjálfarateymi, þeir verða sterkir í sumar. KA hefur farið hægt af stað og það heldur aðeins áfram en svo hitna þeir þegar líður á mótið.

Keflavík 1 - 2 Breiðablik (18:00 í kvöld)
Sumarið verður erfitt hjá Keflavík, þeir þurfa meiri styrkingu og það verður sigur fyrir þá að ná að halda sér uppi. Stefan Ljubicic mun þó skora fullt af mörkum fyrir þá. Þetta verður lokaður leikur og endar með sigri Breiðabliks.

ÍBV 1 - 3 KR (13:00 á morgun)
KR fær yfirleitt á sig mark eða mörk en skora líka yfirleitt mikið og hafa farið vel af stað. ÍBV mun eiga erfitt sumar og verða í fallbaráttu. KR tekur þennan leik nokkuð létt.

Þór 1 - 2 Fram (17:00 á morgun)
Fram er með betra lið en Þór. En það er pottþétt erfitt að fara norður og ná í öll 3 stigin. Ég held þó að gæði leikmanna Fram muni samt hafa yfirhöndina og þeir vinna þennan leik 1-2 en það verður ekki létt.

Víkingur R. 2 - 1 Stjarnan (19:15 á morgun)
Þarna mætast tvö bestu lið Íslands núna. Leikmannahópur Víkings er sá sterkasti sem hefur nokkurn tímann sést hjá félagsliði á Íslandi. Þeir vinna þennan leik á heimavelli. Þeir munu vinna langflesta leikina sína í sumar. Stjarnan mun veita þeim einhverja samkeppni en ekki nægilega.

Valur 1- 0 FH (19:15 á morgun)
Þarna mætast tvö lið sem hafa oft verið sterkari. Ég hef trú á að Valur vinni jafnan leik og að Adam Pálsson leggi upp sigurmarkið. Bæði lið verða um miðja deild en gætu líka alveg sogast niður í neðri hlutann.

Fyrri spámenn:
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Siggi Hall (1 réttur)
Deano.

Deano.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leggur Adam upp sigurmarkið?

Leggur Adam upp sigurmarkið?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR15+1732
3Fram14+1230
4Breiðablik14+825
5Valur15-519
6Keflavík14-716
7Stjarnan14-315
8ÍBV14-715
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór14-268
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.