Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   fim 16. apríl 2026 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ágúst spáir í 2. umferð Bestu deildarinnar
Ágúst er upprennandi tónlistarmaður og mu
Ágúst er upprennandi tónlistarmaður og mu
Mynd: Úr einkasafni
Fáum við mark frá Birki Heimis?
Fáum við mark frá Birki Heimis?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst spáir því að Stjarnan rúlli yfir FH.
Ágúst spáir því að Stjarnan rúlli yfir FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Veislan heldur áfram í Bestu deildinni á morgun þegar heil umferð fer fram.

Fyrsta umferðin var stórskemmtileg en Sigurður Bjartur Hallsson, spámaður þeirrar umferðar, var bara með einn réttan. Tónlistamaðurinn Ágúst Þór Brynjarsson, sem á ágætis fótboltaferil að baki, ætlar að gera betur það en hann spáir í leiki 2. umferðar.

Ágúst, sem spilaði meðal annars með Völsungi, Þór, ÍR og Magna hefur verið að gera mjög skemmtilega hluti að undanförnu. Hann var nýlega kynntur sem nýr brekkusöngvari á Þjóðhátíð í Eyjum og var að gefa út lag með Unu Torfa.

Valur 1 - 1 ÍBV (16:30 á morgun)
Ég er náttúrulega nýjasti stuðningsmaður ÍBV og það verða mínir menn í sumar, það er svakalega mikil jafnteflis lykt af þessu, Birkir Heimis potar honum inn í klafsi hann fyrir Valsara og Viggó setur hann fyrir okkur Eyjamenn.

KR 4 - 1 Þór (17:30 á morgun)
Eftir góða byrjun hjá mínum fellow norðanmönnum í Þór, að þá held ég að þeir fái gamla góða velkomnir í Bestu skellinn strax í annarri umferð, sem ég held að sé bara gott að fá hann snemma, KR-ingarnir taka þennan leik.

KA 2 - 3 Víkingur R. (17:30 á morgun)
Það er bara ekki annað hægt en að spá Víkingnum sigri með þetta lið sitt, þetta verður tæpt því KA menn verða sprækir, fáum líklegast mörk frá Jakobunum tveimur í liði KA og Valdimar hjá Vikes opnar markareikninginn þetta sumarið.

Breiðablik 3 - 3 ÍA (18:00 á morgun)
Í minningunni er einhvern veginn alltaf fjör og læti þegar Skagamenn mæta í Smárann, mikið af mörkum og sennilega einhver hiti, eina sem ég veit er að Davíð Ingvars er að fara setja hann í þessum leik.

Fram 1 - 2 Keflavík (18:00 á morgun)
Ég hef það á tilfinningunni að Keflavík séu í meiri gír en Framarar og taki þetta í svona frekar rólegum leik.

Stjarnan 4 - 0 FH (20:00 á morgun)
Sem Arsenal maður þá elska ég þessa nýju leikþætti hjá Stjörnunni, fundir inni á miðjum velli og Jökull er sennilega með ljósaperuna inni í klefa líka eins og minn maður Arteta, en því miður fáum við enga fundi hjá Stjörnunni í þessum leik þar sem þeir eru að fara rúlla yfir FH-ingana.

Fyrri spámenn:
Siggi Hall (1 réttur)


Slapp
banner