Fotbolti.net
01.05.26 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Gísli Gotti spáir í 5. umferð Bestu deildarinnar

Gísli spilar í dag með Lech Poznan í Póllandi.

Gísli spilar í dag með Lech Poznan í Póllandi.

Canon

Mynd: EPA

Gísli Gottskálk Þórðarson, efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar árið 2024, spáir í leikina sem eru framundan í deild þeirra bestu. Hann leikur í dag með Lech Poznan í Póllandi.
<b>Efnilegastur 2024</b> - Yfirsýn, mótor og þvílíkur leikskilningur
TENGT EFNI

Efnilegastur 2024 - Yfirsýn, mótor og þvílíkur leikskilningur

Þór 1 - 2 KA (16:00 á morgun)
Sturlaður leikur og held ég algjört 50/50 en ætla setja traustið á Djuric, maður þekkir hvað hann getur í bolta og hann tryggir fyrsta sigur KA manna. Ágúst Hlyns verður samt maður leiksins

Valur 2 - 3 KR (19:15 á morgun)
Þessi lið hljóta að bjóða uppá alvöru leik, Aron Sig líklegast með 2 mörk og assist og Dóri með stórleik í markinu, þá væri ég nokkuð sáttur. AP passar að þetta verði ekki sannfærandi sigur hjá KR og setur allavegana eitt.

Stjarnan 2 - 1 ÍA (16:00 á sunnudag)
Þetta verður fínasti leikur. Biddi heldur áfram að delivera og kemur að báðum mörkunum og Stjarnan tekur 3 stig.

ÍBV 0 - 3 Breiðablik (16:00 á sunnudag)
Blikarnir taka þennan leik frekar auðveldlega held ég. Ólafur Ingi er að fara gera góða hluti á þessu tímabili með Blikana og Ágúst Orri og Ásgeir Helgi munu eiga rosalegan leik í eyjum.

FH 2 - 2 Fram (18:00 á sunnudag)
Held að þetta sé eina jafnteflið í þessari umferð. Tómas Orri vinur minn heldur áfram með sína uppskrift, mark og gult.

Keflavík 0 - 3 Víkingur R. (18:00 á sunnudag)
Mínir menn taka þetta sannfærandi. Sölvi er ekki að fara tapa svona leik. Nokkuð gefið að Valdi skori allavegana eitt, en ef Sveinn Gísli væri ekki frá vegna meiðsla þá yrði sigurinn stærri það er 100%.

Fyrri spámenn:
Stefán Þór (3 réttir)
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Siggi Raggi (3 réttir)
Siggi Hall (1 réttur)
Aron Sigurðarson, fyrirliði KR.

Aron Sigurðarson, fyrirliði KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.10+2828
2KR10+1525
3Fram9+920
4Breiðablik9+715
5Valur10-315
6ÍA9-412
7Keflavík9-611
8KA9-310
9Stjarnan10-410
10Þór9-166
11ÍBV9-95
12FH9-142
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.