Fótboltasamfélagið á Íslandi hefur heldur betur komið saman fyrir Ingvar Jónsson, markvörð Víkinga, sem greindist með illkynja krabbamein fyrir stuttu.
Stjarnan og Víkingur, félög sem Ingvar hefur gert ótrúlega mikið fyrir, stóðu fyrir styrktarleik fyrir hann og fjölskyldu hans á dögunum og sungu stuðningsmenn beggja liða um hann á meðan leik stóð.
Stjarnan og Víkingur, félög sem Ingvar hefur gert ótrúlega mikið fyrir, stóðu fyrir styrktarleik fyrir hann og fjölskyldu hans á dögunum og sungu stuðningsmenn beggja liða um hann á meðan leik stóð.
Leikir kvöldsins í Bestu deild karla verða báðir styrktarleikir fyrir Ingvar og hans fjölskyldu en það er hægt að kaupa miða í gegnum Stubb appið og styrkja þannig málefnið.
KR segir þá á sínum samfélagsmiðlum að leikmenn meistaraflokks karla hafi lagt inn á styrktarreikning Ingvars til að sýna honum og fjölskyldu hans stuðning í þessari erfiðu baráttu.
„Fyrirliðinn Aron Sig hvetur önnur félög og alla KR-inga, sem hafa tök á, að gera slíkt hið sama. Við stöndum saman öll sem eitt," segir í tilkynningu KR.
Knattspyrnudeild Víkings hefur stofnað styrktarreikning sem hægt er að leggja inn á:
0357-22-008868
kt 420787-1469



