Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 16:30
Kári Snorrason
Umsókn Víkinga um undanþágu send til baka - „Algjörlega fáránlegt ef þetta fer ekki í gegn“
Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.
Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Aron gæti verið frá á gegn Val á sunnudaginn til þess að vera viðstaddur fæðingu barnsins síns.
Aron gæti verið frá á gegn Val á sunnudaginn til þess að vera viðstaddur fæðingu barnsins síns.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Örlygur hefur verið hálfgerður varamarkvörður Víkings í síðustu tveimur leikjum.
Viktor Örlygur hefur verið hálfgerður varamarkvörður Víkings í síðustu tveimur leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Undanþágan sem Víkingur sótti um frá KSÍ til þess að geta fengið inn markvörð utan félagaskiptaglugga var send til baka. Glugginn er lokaður og verður það í tæpa tvo mánuði til viðbótar og Víkingur er sem stendur einungis með einn markvörð til taks.

Ingvar Jónsson greindist með krabbamein í upphafi mánaðar og verður því miður ekki meira með. Uggi Jóhann Auðunsson hefur verið varamarkvörður fyrir Aron Snæ Friðriksson en hann er að glíma við brjósklos.

Fótbolti.net ræddi við Kára Árnason, yfirmann fótboltamála hjá Víkingi, um stöðu markvarðarmála.

„Við erum í smá stappi við KSÍ um þetta og í rauninni vonum bara það besta. Við fengum hana senda aftur til baka eftir fyrstu umsókn, þá fannst þeim eitthvað vanta inn í þetta. Við erum aðeins búnir að laga hana til og senda hana aftur. Núna bíðum við eftir svörum frá Eysteini sem er úti í Japan.“

Árni Marinó Einarsson, markvörður ÍA, ristarbrotnaði á dögunum og fengu Skagamenn undanþágu frá KSÍ til þess að kaupa Jón Sölva Símonarson frá Breiðabliki.

„Í ljósi þess að Skagamenn missa einn leikmann frá í meiðsli, þá missum við tvo frá í sömu stöðu. Mér finnst það algjörlega fáránlegt ef að þetta færi ekki í gegn. Enda reikna ég 100% með því að þetta fari í gegn eftir að við höfum lagað þessi atriði.“

Kári býst ekki við því að ná inn markverði fyrir leikinn gegn Val á sunnudaginn. „Vonandi náum við að klára þetta fyrir leikinn gegn ÍA, 12. júní. Auðvitað viljum við reyna vinna þetta eins hratt og hægt er,“ segir Kári.

Er Víkingur með markvörð kláran ef undanþágan er veitt?
„Nei, þetta er flókið mál og þessar reglur eru mjög óskýrar. Við erum að vinna þetta með KSÍ og vonandi fáum við að klára þetta eftir helgi.“

Ögmundur Kristinsson hefur verið nefndur sem augljós kostur fyrir Víkinga en Kári vildi ekki tjá sig um einstaka leikmenn.

Aron gæti verið frá vegna barneigna
Kærasta Arons Snæs Friðrikssonar, eina leikfæra markvarðar Víkings, á von á barni á næstu dögum og gæti það sett Víkinga í erfiða stöðu ef barnið skyldi koma í heiminn á leikdegi gegn Val.

„Svo er það annað. Það gæti dottið inn. Þetta er ekki frábær staða sem við erum í. En við erum að reyna leysa þetta með KSÍ og vonandi eru þeir tilbúnir að reyna hjálpa okkur með þetta frekar en að vinna gegn okkur.“

Ef allt endar á þann veg, hvað er í stöðunni, mun Viktor Örlygur byrja í markinu?
„Við verðum að skoða þetta. Ég ætla ekkert að gefa út hvað við gerum. Við förum bara yfir þá brú þegar við komum að henni,“ segir Kári að lokum.

Slapp
banner
banner